NOTE: This article is more than 5 years old.
29 May 2020
/

Ný viðskiptaáætlun sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn komin út

{image.Description}
Á grundvelli nýrrar framtíðarstefnu stjórnvalda og atvinnulífs fyrir íslenskan útflutning, sem Íslandsstofa kynnti síðastliðið haust, hefur sendiráðið í Kaupmannahöfn unnið greiningu á danska markaðnum, þróun viðskipta á milli landanna og tækifærum fyrir íslenskt atvinnulíf. Áhersla var lögð á að skilgreina hvernig sendiráðið getur lagt sitt af mörkum við framkvæmd nýju stefnunnar, kortleggja þau verkefni sem fram undan eru og tryggja samhljóm við starf Íslandsstofu. Hér gefst áhugasömum kostur á að kynna sér þessa nýju viðskiptaáætlun sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn.